Ég kveikti sko ekki í ...

... sagði brennuvargurinn!

Það sér auðvitað hvert barn að vaxtastefna Seðlabankans réði mestu um erlenda skuldsetningu þjóðarinnar. Röksemdir þessa kjána eru sambærilegar við það ef eigendur Melabúðarinnar réðust á fólk með skömmum fyrir að versla í Bónus.

Og fjölmiðlalögin. Nú kemur í ljós hver tilgangur þeirra var í raun og veru - að koma í veg fyrir gagnrýni á Davíð Oddsson. 

Apamaðurinn veltir því nú fyrir sér hvort hann þurfi að útvíkka greiningu sína á Davíð Oddssyni - hann sé ekki aðeins fífl heldur algerlega veruleikafirrtur.

Apamaður bíður spenntur eftir áhrifunum af þessum nýjasta skrípaleik fíflsins á gengi krónunnar erlendis.


mbl.is Uppskeran eins og sáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig AUKA háir vextir ásókn í lán?

Forvitnimaðurinn (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 09:22

2 Smámynd: Apamaðurinn

Háir vextir hér auka ásókn í erlend lán á lágum vöxtum

Apamaðurinn, 18.11.2008 kl. 09:23

3 identicon

Auka ekki beint ásókn í lán heldur færast lánin úr landi yfir í erlenda mynt. Það þýddi svo svimandi háar afborganir þegar gengið fór til andskotans og aðeins lengra en það..

Davíð (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband