Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Aftur á listann með'ann

Apamanninum finnst einboðið að setja Seðlabankann strax aftur á hryðjuverkalistann. Honum er stjórnað af hryðjuverkamanninum Davíð, með dyggum stuðningi vinar hans, frjálshyggjudrottningarinnar.

Apamaður leggur til að herra Kúkabrúnn láti bankann þeirra félaga beint á listann og sendi MI5 að sækja kónginn og drottninguna í hvínandi hvelli! Þá skulum við fyrirgefa honum allt!


mbl.is Seðlabanki á hryðjuverkalista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég kveikti sko ekki í ...

... sagði brennuvargurinn!

Það sér auðvitað hvert barn að vaxtastefna Seðlabankans réði mestu um erlenda skuldsetningu þjóðarinnar. Röksemdir þessa kjána eru sambærilegar við það ef eigendur Melabúðarinnar réðust á fólk með skömmum fyrir að versla í Bónus.

Og fjölmiðlalögin. Nú kemur í ljós hver tilgangur þeirra var í raun og veru - að koma í veg fyrir gagnrýni á Davíð Oddsson. 

Apamaðurinn veltir því nú fyrir sér hvort hann þurfi að útvíkka greiningu sína á Davíð Oddssyni - hann sé ekki aðeins fífl heldur algerlega veruleikafirrtur.

Apamaður bíður spenntur eftir áhrifunum af þessum nýjasta skrípaleik fíflsins á gengi krónunnar erlendis.


mbl.is Uppskeran eins og sáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notum dýralækninn á réttan hátt!

Apamanninum finnst það sóun á dýralækni að láta hann vera að standa í einhverjum flóknum samningaviðræðum á útlensku við einhverja kóna. Dýralæknar eru ekki vanir að standa í samningum, eða yfirleitt neins konar samræðum við viðskiptavini sína. Þeir láta bara verkin tala.

Apamaðurinn leggur til að næst þegar dýralæknirinn okkar fer til Englands taki hann með sér viðeigandi lyf og búnað og sæti síðan lagi að svæfa einfaldlega Hr. Brún og aðra vonda kalla, svona rétt eins og gert er við grimma hunda.


mbl.is Deilur vegna Íslands í gerðardóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leynivopn Íslands

Að áliti Apamanns er hér komið hið fullkomna tækifæri til hefndar á þessum dapurlega icesave-kjaft-rífandi óþjóðflokki. Sendum þeim nú alla okkar karlkyns ráðherra, seðlabankafríkið og útrásarvíkingana og látum þá ***** sér í dollu - þá líður ekki á löngu áður en þessi búðarlokuþjóð líður undir lok!


mbl.is Sæðisgjafa skortir í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningar Apamannsins

Apamaðurinn skilur vel að enginn þori að lána Íslendingum. Apamaðurinn myndi ekki sjálfur þora að lána landi sem þráast við að halda fáráðlingi í embætti seðlabankastjóra peningana sína. Hann myndi varast að lána landi þar sem ríkisstjórnin er undir forystu manns sem hefur sýnt að hann er algerlega vanmáttugur.
mbl.is Afgreiðslu umsóknar frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að "haarda" með vinunum

Nú verður allt vitlaust í Bretlandi þegar í ljós kemur að Brown var aðvaraður.

En hvað með Ísland. Finnst engum öðrum en Apamanninum neitt athugavert við að Geir hafi vitað það í vor að bankarnir væru á leið í hrun en ekki gert neitt í því? Finnst engum ámælisvert að þá hafi ekki strax verið mótuð aðgerðaáætlun sem mætti grípa til þegar á þyrfti að halda?

Finnst engum neitt að því að þetta grey hafi bara verið að "haarda" með vinunum í stjórninni, dunda við Öryggisráðsframboðið og svona og segja brandara?


mbl.is Aðvörunin verði rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband