Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Lífeyrissjóðir og vaxtastefna

Apamaðurinn er ekki alveg sannfærður um að það sé sniðugt að selja allar erlendar eignir lífeyrissjóðanna og kaupa fyrir þær krónur. Ástæðan er einfaldlega sú, að traust Apamannsins á hæfni íslenskra stjórnvalda og Seðlabankans til að taka réttar ákvarðanir er afar lítið um þessar mundir. Það grundvallast á reynslunni.

Í Mogganum í dag er viðtal við þaulsætinn bankaráðsmann í Seðlabankanum. Sá heitir Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hann er þar spurður hvort það sýni ekki gagnleysi vaxtastefnu bankans að hún skuli ekki virka. Svarið er að hún virki á endanum vegna þess að það sé gamalt lögmál að á endanum leiði háir vextir til samdráttar.

Apamanninum finnst þetta ákaflega heimskulega mælt. Vextir Seðlabankans virka að sjálfsögðu ekki vegna þess að hagkerfið hér er opið fyrir erlendu fjármagni og algerlega háð viðskiptum við önnur lönd. Kenningin sem bankaráðsmaðurinn vísar til á aðeins við í stóru lokuðu hagkerfi eins og t.d. BNA. En vandi Seðlabankans kristallast í því að sérfræðingar bankans hanga í kenningum sem þeim voru einhvern tíma kenndar í skóla, en gleymdist að útskýra fyrir þeim að ættu bara stundum við. Bankastjórinn er of illa gefinn og ábyrgðarlaus til að velta því fyrir sér sjálfur hvort sérfræðingarnir hafi endilega rétt fyrir sér. Og bankaráðsmaðurinn mótaði sér þá lífsafstöðu fyrir 20 árum síðan að hagsmunum sínum væri best borgið með því að fylgja leiðtoganum alltaf í algjörri blindni, sama hvað á gengi.

Ákvarðanataka á svona grundvelli er ástæða þess að Apamaðurinn óttast nú um lífeyrissjóðina. Ef Samfylkingin sér ekki til þess að heimflutningi fjár þeirra fylgi alger stefnubreyting í Seðlabankanum þar sem vextir verði lækkaðir umtalsvert strax og lögum um bankann breytt, þá óttast Apamaðurinn að töluverður hluti af lífeyri landans gæti tapast á einu bretti.


mbl.is Mætt snemma til funda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strútafélagið ályktar

Strútafélag Íslands hefur sent frá sér svohljóðandi ályktun:

Nú þegar allt bendir til þess að við séum öll að fara á hausinn liggur í augum uppi að affarasælast er að fara að dæmi seðlabankastjóra, kennara, lækna og annarra hófstilltra aðila og reka hann eins djúpt ofan í sandinn og nokkur kostur er á.

Sé sandur ekki tiltækur er réttast að stinga höfðinu þið vitið hvert!

Bíða svo bara!


mbl.is Kennarar taka undir með landlækni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Októberbotninn?

Apamanninn rekur minni til að þessir fuglar hafi margoft áður sagt að botninum væri náð. Er hann ekki bara að meina októberbotninn, þessi? Svo kemur nóvemberbotninn og svo jólabotninn. Og þá dettur botninn úr þessu öllu saman.

Eða kannski botninn sé bara suður í Borgarfirði, eins og hjá Bakkabræðrum þegar þeir týndu tunnubotninum?

Botninum náð, segja þeir, og hamast við að bera sólarljósið inn í gluggalausan Seðlabankann. Ætli það dugi til?


mbl.is Telur botninum náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilvonandi seðlabankastjóri??

Say no more!


mbl.is 7 ára drengur olli uppnámi í dýragarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkuveitan traustsins verð!

Það kemur Apamanninum ekki á óvart að Orkuveitan fái lán á góðum kjörum. Hún hefur einokunarstöðu á húshitunarmarkaði gagnvart þorra þjóðarinnar og nýleg 10% hækkun sýnir að Orkuveitan hikar ekki við að nýta sér þá stöðu. Það skiptir í rauninni engu máli hversu miklu OR tapar á fjárfestingum í rafmagnsframleiðslu handa álverum. Það næst allt til baka á taxtahækkunum til almennings. Lánveitendur hrífast af svona fyrirtækjum. Þeir vilja allt fyrir þau gera.


mbl.is OR semur um fjármögnun á hagstæðum kjörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með kínatvífarann?

Kemur nokkur annar til greina sem næsta Nóbelsskáld en Þorgerður Kínatvífari eftir að hún lýsti yfir því að skammarverðlaun í strandblaki feitra á Smáþjóðaleikum lamaðra jafngiltu Nóbelsverðlaunum?
mbl.is Vangaveltur um næsta Nóbelsskáld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apamaðurinn hlakkar til

Apamaðurinn hlakkar eiginlega bara til að labba í vinnuna eftir götum troðfullum af fólki meðan bílarnir hírast heima aumlegir. Bara gaman að fá tækifæri til að upplifa það.

En hvernig var þetta annars í gamla daga. Var ekki úldinni síld og alls konar drasli prangað inn á Rússa í skiptum fyrir olíu? Er ekki hægt að taka þann pakka aftur?


mbl.is Hætta á að landið verði olíulaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiðluleikur

Apamaðurinn efast um að nokkur sem horfði upp á málpípu Seðlabankastjórans, ábyggilega bláedrú í þetta skiptið, rífa kjaft við Sigurð G. Guðjónsson á Stöð 2 í gær, efist um það eitt andartak að stórmerkar fréttaskýringar Morgunblaðsins um þessi mál standi eins og stafur á bók.

Í alvöru: Nú veitir sænski seðlabankinn gjaldeyri inn í bankakerfið í formi lánsfjár. Þar á bæ er ekki valin sú leið að þjóðnýta bankana. Kannski það sé vegna þess að þar í landi eru ákvarðanir af þessum toga teknar af sérfræðingum en ekki hálfvitlausum kjána sem sér bankakreppuna fyrst og fremst sem tækifæri til að ná sér niðri á einhverjum mönnum sem hann hatar heilu hatri - og enginn veit einu sinni af hverju!

Af hverju tekur enginn af honum fiðluna - og rotar hann svo með henni?


mbl.is Fjárþörfin 230 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband