Björgum Zimbabwe

Apamaðurinn leggur til að Ísland komi til aðstoðar og bjóði Robert Mugabe að gerast seðlabankastjóri hér. Í staðinn myndum við senda leiðtogann og mannasættinn Davíð til þeirra.
mbl.is Þjóðstjórnarsamningur í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorskhausastríðið

Munurinn á Þorskastríðinu og milliríkjadeilu dýra læknisins er auðvitað sá að þá glímdu menn um þorska, en nú glíma þorskhausar.
mbl.is Íslendingar þrjóskir og ósveigjanlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneppum þá í þrældóm!

Nú eru Bretar komnir hér að heimta sitt og munu vafalaust fá það með skilum.

Almenningur þarf hins vegar að hugsa fyrir því hvernig hægt er að lágmarka skaðann og koma honum þangað sem hann á heima. Þar hefur Apamaðurinn ágæta tillögu:

Nú ætti að senda sérsveitina af stað að sækja auðmennina og hirða af þeim eignir þeirra. Svo ætti að smala þeim, ráðherrum, seðlabankastjórum og öðrum þeim kauðum sem unnu ekki vinnuna sína, saman í risastórt búr í Húsdýragarðinum. Svo getum við selt ferðamönnum inn og leyft þeim að skoða hvað við Íslendingar gerum við svona lið. Hérlendur almenningur fengi auðvitað frítt inn.


mbl.is Viðræður við sendinefnd Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna var ekki svarað?

Apamaðurinn furðar sig á því að íslensk stjórnvöld skuli ekki strax hafa svarað yfirlýsingum Darlings og Browns ef þær voru rangar. Hefði það verið gert hefði Kaupþing líkast til staðið.

Það er augljóst á athugasemdum við greinina í Guardian, sem vísað er til, að breskir lesendur vita ekki betur en það liggi fyrir að íslensk stjórnvöld ætli ekki að borga. Enn hefur enginn haft fyrir því að leiðrétta þetta.

Við komumst sjálfsagt aldrei að því hvað dýralæknirinn sagði. Einhver stakk upp á þessu:

Darling: "Will you honour your obligations?"

Dýri: "Me no understand."

Darling: "Will you guarantee the Icesave deposits?"

Dýri: "Now me understand. Me no say me no pay."

Darling: "You mean you will not pay??"

Dýri: "Yes, me no no pay Darling"

En ef forsætisráðherra hefði einfaldlega gefið yfirlýsingu um það strax í kjölfarið á yfirlýsingum breskra ráðamanna að við hyggðumst standa við allar skuldbindingar hefði þetta aldrei farið svona.

Byrjunin er að lýsa íslensku ráðherrana gjaldþrota og hirða eignir þeirra. Næsta skref er að skoða málssókn á hendur breskum stjórnvöldum.


mbl.is „Sparkað í liggjandi (Ís)land"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara eins og mafíósi!

Glæpamenn þurfa í kringum sig lífverði. Það er alþekkt.

Maðurinn sem ber ábyrgð á gjaldþroti íslensku þjóðarinnar er glæpamaður. Þess vegna þarf hann lífverði.


mbl.is Lífverðir gæta Geirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er bara rangt!

Geir Haarde sagði rétt áðan að allt væri í fínasta lagi með millifærslur. Er SÍNE að skrökva upp á Geir Haarde?
mbl.is Gríðarlegur vandi námsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru seðlabankastjórarnir?

Nú heldur Geir Haarde því fram að gjaldeyrisviðskipti séu í besta lagi. Þeir sem reyna að eiga slík viðskipti vita að það er lygi.

Hann heldur því fram að gjaldeyrir sé að koma inn í landið og hefur það eftir stjórnendum Seðlabankans. Það er vafalaust lygi líka.

Samkvæmt heimildum Apamannsins eru seðlabankastjórarnir allir óstarfhæfir. Einn er á sjúkrahúsi með hjartaáfall. Annar liggur heima með sængina upp fyrir haus. Sá þriðji er kominn á drykkjutúr.


mbl.is Brown gekk allt of langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fífl!

Hefur þessi mannlegi úrgangur ekki orðið var við það að gjaldeyrismarkaður hér er lamaður?
mbl.is Gjaldeyrisskiptasamningar virkjaðir er þörf krefur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerum Vilhjálm strax að seðlabankastjóra

Ef einhver dugur er í Samfylkingunni ætti hún að krefjast þess að Villi Egils verði strax gerður að seðlabankastjóra og Svörtu pöddunni hent öfugri út.

Það segir sig auðvitað sjálft að eðlilegast er að leita til IMF sem er sú stofnun sem sérhæfir sig í að koma til bjargar við svona aðstæður. Það er ótrúlegt og furðulegt að fávitinn Geir Haarde skuli heldur vilja leita til Rússa, sem allir geta sagt sér sjálfir að ætla að nýta ástandið sér til framdráttar.

Apamaðurinn á ekki orð yfir því að forsætisráðherrann skuli vera svo gersamlega skyni skroppinn að jafnvel þegar hann er búinn að koma landinu á hausinn skuli aðalmálið hjá honum vera að reyna að slá einhverjar pólitískar keilur með því að hvekkja vesturlönd og pirra Breta með svona fíflagangi.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera. Hann hefur valið sér trúð til forystu - og trúðurinn er ekki einu sinni fyndinn!


mbl.is Vill fá aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkjasamband við Noreg strax!

Það er ömurlegt að sjá Haarde reyna að kenna Bretum um það sem allir vita að er Davíð Oddssyni að kenna. Það er líka ömurlegt að sjá hann lýsa því yfir að allar innstæður í bönkum séu tryggðar. Hvernig eiga þær að vera tryggðar þegar verið er að selja eigur bankanna á brunaútsölu fyrir brot af því verði sem fengist hefði fyrir þær ef íslenski seðlabankinn hefði tekið á málefnum Glitnis á sama hátt og seðlabankar annarra landa hafa gert gagnvart sínum bönkum?

Innistæðurnar eru auðvitað alls ekki tryggðar því ríkið er í raun gjaldþrota!

Það má alls ekki trúa orðum Haarde eða annarra stjórnmálamanna. Þeir hafa engan skilning á stöðunni sem þeir eru búnir að koma þjóðinni í.

Ef rússalánið verður svo tekið er efnahagslegt sjálfstæði okkar komið í hendurnar á Pútín. Þá verður ekki aftur snúið!

Íslensk stjórnvöld eru algerlega rúin trausti eftir að hafa látið snarbrjálaðan mann eyðileggja efnahagskerfi landsins. Landið er komið í þrot og á sér ekki viðreisnar von sem sjálfstætt ríki. Apamaðurinn leggur til að þegar í stað verði óskað eftir ríkjasambandi við Noreg og íslenska ríkisstjórnin verði sett af.


mbl.is Forsætisráðherra: Breska fjármálaeftirlitið felldi Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband